Um Sinalco

Sinalco á Íslandi

Sinalco er einn elsti gosdrykkur heims, en drykkurinn var fundinn upp í Þýskalandi árið 1902. Þekktasta tegundin er Sinalco Orange, sem hefur lengi notið mikilla vinsælda um allan heim.

Sinalco var meðal vinsælustu gosdrykkja á Íslandi á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar en innflutningi á drykknum var hætt í upphafi níunda áratugsins.

Sælgætisgerðin Góa-Linda ehf. hóf svo innflutning á Sinalco að nýju árið 2012. Á Íslandi eru nú seldar tvær gerðir af Sinalco, þ.e. Sinalco Orange og Sinalco Cloudy Lemon.