Viðburðir

Sinalco Beach Spot

Sinalco lætur drauma rætast – og ekki bara í nýrri sjónvarpsauglýsingu sem tólf manna teymi frá fimm löndum gerði að veruleika á fallegri strönd í Suður-Taílandi. Sinalco – krydd í tilveruna, fjör með vinum og alltaf eitthvað að gerast. Þar hefst sagan í sjónvarpsauglýsingunni: draumarnir rætast hjá ungum manni þegar gullfalleg kona stígur upp úr heiðbláu hafinu. Fljótlega situr ungi maðurinn á handklæði á ströndinni og nýtur þess að drekka ískalt Sinalco í félagsskap tveggja kvenna.

„Auglýsingin markar upphaf nýrrar herferðar í Evrópu en hún hefur þegar birst í Mið-Austurlöndum,“ segir Mongi Goundi, framkvæmdastjóri Sinalco International. „Með auglýsingunni viljum við vekja upp tilfinningar sem tengjast sumrinu í draumkenndu atriði með strönd, pálmatrjám og fagurbláu hafinu. Auk sjónvarpsauglýsingarinnar höfum við framleitt nokkrar útfærslur af veggspjöldum og prentauglýsingum. Sjónvarpsauglýsingin hefur verið í birtingu á heimsvísu á MTV síðan í apríl. Einnig hefur verið útfærð sérstök kostunarstikla fyrir MTV Adria topp 20.
Við vildum færa ströndina inn í búðirnar og þess vegna höfum við framleitt sérstaka Sinalco sundfatalínu fyrir sumarið. Þar fást bæði Sinalco stuttbuxur og Sinalco bikini. Sundfatalínan er framleidd í samstarfi við þýska vörumerkið exxtasy. Þar að auki eigum við sólhlífar, bretti og sandala sem við höfum hugsað okkur að gefa í ýmsum leikjum og keppnum.

more